82klst og 40mín í flugið okkar :)

Jæja við erum á leiðinni til Fuerteventura á Corralejo ströndina öll fjölskyldan. flogið verður  kl.07:00 á Þriðjudaginn =) það er orðinn mikill spenningur í liðinu. búið að pakka niður og alles sko hehe  Mamma og pabbi koma með okkur en þau fengu ekki gistingu á sama hóteli og  við en stutt á milli...  Við verðum á Playa Park en þau á Maxorata 

Það er lítið að frétta hér af bænum  

Eyrún og Haukur komu heim í dag frá MIAMI crúsferð hehe og þau voru svo góð að kaupa fyrir okkur 2 IPODA nánast á verði eins hér á Islandi.. Svo það verður sett inn fullt af lögum áður en við förum út krakkarnir með PSP og yngsti með nóg af dóti hehe. 

Jæja kveð að sinni ;)  


ÞAÐ ER AÐ KOMA SUMAR ...

Það er komið alltof langt síðan ég skrifað hér siðast... Ég veit ekki hvar ég á að byrja ...

Það var jú keyrt á skodan hér úti á stæði og stungið af í janúar. Yngsti meðlimurinn er farinn að hlaupa út um allt og hann er algjör frekja .... Hann er samt algjör DÚLLA.

Pabbi og Mamma unnu eitt af mörgum málum við Íslandsbanka og þau vildu endilega deila því með okkur systkinunum. Þau komu með 3 umslög í afmælið hennar Dagnýjar og Sveinbjörns og í hvoru umslagi var 200.000kr sem við áttum að nota fyrir okkur í bara hvað sem er NEMA SKULDIR =) hehe

Við létum því til skara skríða og tókum baðherbergið í gegn enda löngu kominn tími fyrst ætluðum við bara að skipta um dolluna en við fundum upphengt klósett á tilboði sem við stóðumst ekki því það kostaði BARA 29.900kr :) en svo þurfti kítti, frauðeinangrun, klæðningu, svo var ákveðið að mála og fyrst við vorum komin svona langt var synd að hætta svo við keyptum flísalim og fúgu og settum flísarnar á gólfið sem hefur staðið lengi til. Svo bættist við innrétting og nýr vaskur og nýtt ljós :) svo að á endanum þá var baðherb. komið uppí 120.000kr En við keyptum okkur nýja Ameríska dýnu á rúmið okkar og Grill fyrir 200.000kr svo að ég sé ekki eftir neinni krónu :) MJÖG sátt og þakklát gömlu hjónunum sem eru reyndar ekkert svo gömul ;) Um páskana þá hittumst við fjölskyldan heima hjá mömmu og pabba í kaffi og fórum svo í keiluhöllina sumir spiluðu keilu en aðrir fóru í þythokkí eða pool mjög gaman  og var endað heima hjá mömmu og pabba í BBQ mmmmmmmmm og ís í eftirrétt. Svo núna um helgina sem er að líða að þá ætlum við vinkonurnar að hittast LOKSINS og gera e-h saman planið er BBQ heima hjá Eyrúni og svo kíkja í keilu eða á skauta.. Alex og Dagný fara trúlega uppá skaga til Eyrúnar systir og family þar sem þau eru búin að SUÐA OG SUÐA alltaf svo gaman hjá Eyrúni frænku og Co... Svo Er ég svo heppin að Brósi og Frú ætlað að redda okkur bústað 25-27apríl en Helgi á afm. á sumardaginn firsta (24apríl.) Það verður SVO NICE. Ég er búin að gefa honum afm.gjöfina fyrirfram =) keypti Ps3 + 2xpsp + 2xps3 leiki + 5xpsp leiki en psptölvurnar eru ætlaðar krökkunum :) Jæja þetta er orðið ágætt í bili reyni að skrifa soon :) og þarf að fara að setja inn myndir af guttanum en finnst bara taka svo langan tíma að downloda þeim hingað inn...

Kv. H.e.a.d.s. 


GLEÐILEGT NÝTT ÁR : )

Jæja þá eru jólin búin og komið 2008........

Jólin voru alveg fín. Mamma og Pabbi komu á aðfangadag í Hagikét og Kalkún. Opnuðum pakkana og svona fjör :) Helgi gaf mér kjól, lág stígvél og nýjan GSM :) En við fengum helling í jólagjöf... Spil, 50"plasma ( fengum það fyrirfram) matarstell, jólakirkju, kleinuhringjajárn, karöflu, Helgi heldur í vonina þar sem hann fékk Trommukjuða og ég fékk eyrnatappa frá Eyrúni og Hauki að hann fái í afmælisgjöf frá þeim Trommusett  Smile hehe Krakkarnir fengu alveg helling af dóti og fötum.. Nú styttist í að Dagný verði 8ára og Sveinbjörn Pétur 1árs ALLTOF FLJÓTT AÐ LÍÐA ......... 

Dagný er svo mikil GELGJA að ég get stundum orðið GEÐBILUÐ. Litli... STÓRI stubbur er farinn að sleppa sér en þorir ekki of lengi en þetta fer að koma hjá honum.

Jæja meira seinna

 

KV. HEADS family  


43dagar til JÓLA :)

Já það eru 43dagar til jóla... En já smá info um líf okkar Wink Við vorum að skoða á netinu íbúðir og sendum fyrirspurn um íbúð á Akranesi spurðum hvort þau vildu skipta á okkar í Rvk en því var hafnað en salinn benti okkur á íbúð sem möguleiki væri á að skipta á. Við fórum að skoða og það er sett á hana 23,9millj. Okkur leist alveg ágætlega á aðalega vegna þess að það tæki krakkana 1mín að labba í og úr skólanum...  En íbúðin er í Raðhúsalengju og á 2hæðum. Svo kom maðurinn að skoða okkar á Miðv.daginn sl. kl.15:00 og kl.17:30 hringir salinn og biður um e-mailið okkar og sendir á okkur tilboð frá þeim það hljóðar uppá okkar á 21,9millj +2millj í pen  = 23.9millj. fyrir  þeirra. Tilb. stóð til kl. 14 á fimmtud. Ég og pabbi fórum uppá skaga og skoðuðum aftur og þá kom ýmislegt í ljós m.a að innréttingar eru mjög lélegar, og lélegt gólfefni. allavega 4rúður ónýtar. Svo við fórum á fast.söluna og sögðum að 23,9millj væri of mikið. Salinn bauð okkur þá að senda mann til að meta okkar eign og við þáðum það, "hún" kom svo og mat okkar á Föstud. kl.15:00 og sagði að 21,9millj -22,5millj væri alveg raunhæft boð. En við fengum Remax til aðeins fyrr þennan dag og meta og við fengum mat frá þeim uppá 22.8millj. Auðvita brá okkur að  heyra þessa tölu því við vorum lengi búin að horfa á 19,5millj. Þannig að við keyptum á 14.7millj . ág/2005 og ef við gætum selt á 22,8millj er það hækkun um 8,1millj. Sem er alveg þokkalegt En auðvita hafa lánin hækkað. En já við erum eigilega hætta alveg við að skipta á Raðhúsinu, nennum ekki að standa í endurbótum aftur. allavega ekki svona mikið. En já Plasmatækin áttu að koma á föstudaginn en Tollurinn er með e-h stæla þannig að þau fást ekki fyrr en á mánudag-þriðjudag, En Helgi sá tækið og sagði að það væri bara þokkalega kúl :) Jæja núna ætla ég að kveðja og koma liðinu í háttinn

Svo ég segi bara Bless í bili

 

H E A D S


Jæja kominn tími til að blogga hehe.

Jæja verður maður ekki að skrifa smá hér LoL Monta sig af litla kútinum, Hann er orðinn svo stór og duglegur og svo gaman að fylgjast með honum. Hann segir alveg skýrt Mammma, babbba, afa, ammm, og nammma. Svo er hann alltaf í bíló hehe Alex er loks farinn að hafa áhuga á litla bróa. Hann er já kominn með 8tennur (framtennurnar) ENNN við fórum til doksa á þriðjud sl. því hann vildi svo lítið drekka og var e-h pirraður. En hann er greyið með vírus í munninum sem fer bara fljótlega og svo var miklar bólgur og 1 jaxl farinn að gæjast upp hægra meginn það er útskýringin á pirringinum og eyrnanuddinu. En hann er orðin svo duglegur að drekka úr stútglasi alveg hættur á brjósti mér til mikillar ánægju enda bara hver bróstagjöf orðin kvöl. En hann borðar alveg 5-6x á dag og elskar að fá hrökkbrauð með smjöri Grin En já úr 1 í annað LoL Þá er Octavían okkar sem er btw 2ja og 1/2mánaða gömul að fara á verkstæði núna 26.okt. til að fá nýjan ljós-kastara, hinn er greinilega óþéttur því það er móða inná honum. En við fáum láns tík á meðan hahaha. Ekki það að við þurfum neitt sérstaklega á því að halda þar sem við erum ekki ennþá búin að selja Touraninn og eigum 2 sendibíla Blush Erum jú alltaf á leiðinni með hinn sendilinn á sölu og færa Touraninn eða augl. í blöðunum. Það er ekkert vit að vera að borga 160þ á mánuði í bílalán og 420þ í tryggingar á ári af bílunum 4.

Við tókum íbúðina af sölu ætlum að klára baðherbergið og setja hana svo á aðra sölu láta meta og svona hún var metin í Sept 2005 á 19,5 svo hver veit nema hún sé búin að hækka smá. 

En aftur úr 1 í annað Smile hehe núna styttist óðum í að Plasmatækin sem pabbi var að pannta komi til landsins Pabbi var að tala um lok Oktober. En pabbi og mamma ætla að gefa okkur, systu og co og brósa og co sitthvort 50" tækið Það verður aldeilis munur að horfa á TV þá. 

Eldri börnin eru úti að leika og SPH er að borða brauð með sméri og Ost, Ætli það sé þá ekki kjörið tækifæri til að fara og eldamatinn og gangafrá smá hér áður en ég fer að vinna...

SVO EKKI AÐ NENNA AÐ FARA AÐ VINNA. Mig langar að vinna á BAR Það er það eina sem ég sakna af GALBI hlutanum hehe.. Sakna ekkert veitingageirans né bókhaldinu, og innkaupunum en að afgreiða á barnum var fun........................  hehe gaman að hita alla þessa útlensku kúnna sem voru skemmtilega fullir Wizard  jæja ég bið að heilsa í bili og minni á Gestabókina ALLIR AÐ KVITTA FYRIR SIG hvort sem þið þekkið mig/okkur eða ekki W00t Jæja BÆ Í BILI 

 


Á fullu að baka

Jæja núna er 17.Sept. og það eru 4dagar í afmælið mitt Smile Ætla að bjóða familijunni í smá kaffi á Laugard. er búin að pannta 30manna marsipantertu og er að baka púðusykurtertu, í gær bakaði helgi pizzasnúða og kanelsnúða, mamma ætlar að gera snittur og svæ ætla ég að baka 2 svampbotna á morgun og svo baka ég skúffuköku á föstudaginn. Helgi ætlar að pannta ávaxtabakka og desertbakka frá Sóma "ný tegund" Ég ætla svo að bjóða nokkrum vinum heim um kvöldið samt ekkert búin að plana fyrir það.. En það kemur Wizard Við fórum uppá Skaga í afmæli hjá henni Sóleyju frænku hún varð 6ára í gær byrjuð í skóla og alles við gáfum henni Rúlluskó hún var rosa spennt. Ég var svo HEPPIN að fá einkanúmerið HEADS í afmælishjöf Cool frá Mömmu og Pabba, Tengdó, Bjarka og fjölskyldu, Eyrúnu og Fjölskyldu og Eyrúnu vinkonu og Hauk og audda Helga og börnunum mínum.. 

En Helgi er búinn að kaupa annan Crying pakka ég er búin að sjá hann. ( hann er pakkaður inn)  

Ég var að vinna í gærkveldið fyrir Svanhildi hún ætlar að vera svo ÆÐISLEG að vinna fyrir mig næstuhelgi. Svo á ég að vinna í kvöld og fimmtudagskvöld svo komin í helgar frí. 

29.júní 2007 voru akkurat 15ár síðan við fluttum í Bæinn frá Akranesi.

Nú styttist óðum í jólin ... það eru bara  14vikur í þau eða 98dagar.. Það verður nú stuð um jólin allavega miklu meiri en síðustu jól þegar ég lá með bumbuna uppí loft og gat ekki hreift mig Grin núna verður maður á eftir litla kallinum út um allt að passa upp á pakkana og jólatreíð og svona hehe.

Jæja marengsbotninn er að verða tilbúinn. Ég reyni að skrifa inn aftur soon Halo

 


Jæja best að nota þessa síðu fyrst maður var að búa hana til :)

Núna er 1mánuður síðan við fengum Octaviuna okkar og hún er sko alveg að virka 1,9TDI Við fórum í bústað á henni 10-14ág.Ókum frá Rvk uppí Bgn og úr Bgn uppí Munaðanes. og fórum 2x uppí bgn og svo úr Munaðanesi og til Rvk við tókum 1 rúnt í Rvk og svo heim og þegar við stoppuðum á planinu heima var aðeins 1/4 búinn af tánkinum. Bíllinn var BTW stút fullur af farangri og farþegum. VW okkar er ennþá á sölu vonandi að hann seljist sem fyrst. Helgi keypti sér svo GLÆnýjan Sendibíl M.benz Sprinter kom á götuna 21.08.07 helv... Flottur en gamli sendillinn stendur úti á plani á eftir að sjæna og koma á sölu :P úff svo við erum að borga af 4bílum og 4tryggingar hehe sem betur fer bara tímabundið, Svo erum við að skoða leiguhúsnæði á skaganum. 4-5herb. og ætlum að leigja okkar út á meðan.. Erum alveg staðráðin í að flytja frá RVK. Dagný var reyndar að byrja í 2bekk í hólabrekkuskóla en hún er fljót að kynnast nýjum krökkum. Alex er algjör dugnaðar Grís hefur nokkrum sinnum fengið að hjálpa pabba sínum að keyra út sóma og stundum brætt konurnar í sjoppunum að þær hafa gefið honum sleikjó Grin Og sá allra minnsti lætur sko EKKERT stoppa sig algjör bolti, hann er að verða komin í 9kg enda bara 4dagar í að hann verði 7mánaða gamall, Hann elskar að leika á teppi á gólfinu enda algjör ökuníðingur í göngugrindinni ekur allt og alla niður. LoL Hann Á afmælis daginn hans Pabba sagði hann skírt og greinilega AMMMMA.  Enda elskar ömmu sína útaf lífinu, Mamma er náttla alveg eins og Helga amma. Svona AMMA sem ALLIR ELSKA.. Veit ekki hvar ég og börnin mín værum án hennar múttu .

Núna styttist óðum í að ég verði 25ára það er eilla bara 26dagar i það . Og ekkert plan ennþá ... og það eru 27dagar í að það séu liðin 9ár síðan við Helgi byrjuðum saman. Það eru 5ár síðan við gengum í það heilaga 10.08.02. Mér finnst alltaf jafngaman að rifja upp þegar við kynntumst Tounge smá svona info ... 

Við vorum búin að tala smá saman á IRK-inu þegar við komumst að því að við myndum búa rétt hjá hvort öðru, Svo við ákváðum að hittast. En ég var svo feimin að ég lét hann koma fyrir utan heima en þorði svo ekki út hehe svo ætlaði ég að vera rosa cool næst og var alveg 100% viss um að ég skildi sko þora Svo hittumst við á IRK-inu og ákváðum að hittast daginn eftir í hádeginu semsagt hann var að vinna  í Myllunni til kl. 9 um morguninn en ætlaði að vaka til kl. 12 til að hitta mig sækja mig niðrí búð til pabba og keyra mér heim ( það var ekki alvarlegra en það) en svo rétt fyrir kl. 12 þurfti pabbi að skreppa í bankan og skildi mig eina eftir í búðinni og þá sá ég Helga leggja í stæði fyrir framan og ég fékk hnút í magan og rýk í síman og hringi í vinkonu mína Eyrúnu og þetta var orðið svo spennó hehe þannga til Helgi stendur upp úr bílnum og gengur í áttina að innganginum inní búðina og ég bara SHITT................... En sem betur fer beygði hann inn í sjoppuna við hliðin á ( get svarið fyrir það að hjartað fór uppí hálsinn á mér) Svo  kom hann út úr sjoppunni og fór út í bíl og þá hugsaði ég "djöfulsins sveitalubbi er þetta í lopapeysu og í stígvélum" Blush hehe... jæja pabbi kom og sá bílinn hans Helga og var alltaf að reka á eftir mér að fara út til hans :P ég hélt sko ekki hehe... Fór heim með pabba en Helgi reyndi að elta "halda í við pabba" þegar pabbi stoppaði á planinu heima hljóp ég inn eins og fætur toguðu og ég hringdi í Eyrúnu vinkonu til að segja henni alla sólarsöguna hehe... jæja Svo hitti ég hann á IRkinu nokkrum dögum seinna og afsakaði þetta allt hehe Svo reyndi Helgi í síðasta sinn að bjóða mér á rúntinn föstudagskvöldið eftir þetta og ég ákvað að ég YRÐI að fara og vitir menn ég FÓR :) þetta var bara helvíti gaman, rúnta svona, Ég kom heim að ganga 4 um nóttina átti að mæta í vinnu hjá pabba á Laugardeginum, Laugard.kv. fórum við aftur að rúnta og tókum þá frænda hans með. Ég skemmti mér bara þokkalega. En á Sunnudeginum hittumst við ekki. Svo á Mánudeginum átti ég afmæli og hann vildi endilega bjóða mér í bíó en ég afþakkaði það. En hann vildi endilega fá að sækja mig í skólan (FB) á Þriðjudaginn sem ég samþykkti.. Svo seinna um daginn hittumst við á IRK-inu og við hittumst seinna um kvöldið og byrjuðum saman. Eftir það urðum við óslítanleg í sundur :P Hann þorði reyndar ekki að koma inn til mín fyrr en 3mánuðum seinna en ég þorði heim til hans hehe... Hann var svo sniðugur að leigja Spólu og horfa heima hjá sér svo sofnaði hann útfrá spólunni og á endanum labbaði ég bara heim, Einn morguninn heyrði ég svo í útvarpinu að það var verið að lýsa eftir klikkuðum manni í breiðholtinu. úff ekki góð tilfinning sem streymdi um mann þá. Helgi var þó nánast fluttur inn til mín eftir 6mánaða samband. En já þetta var hálfgerður sirkus í kringum allt þetta hehe, sem er bara gaman að rifja upp. Það verður gaman í ellinni að geta hlegið af þessu öllu saman.

Já fyrst ég er byrjuð að rifja upp gamla tíma Cool Þá verður maður að rifja upp sumó ferð okkar Helga, Eyrúnar og Rúnar ( frændi helga) Við vorum þarna 23-25apríl 1999. Helgi og Rúnar hentu Eyrúnu út í heitapottinn og hún gargaði bara "EKKI SKÓNNA EKKI SKÓNNA... " Það var sko skemmtilegur tími InLove Jæja vá hvað maður getur rifjað margt upp. En ég ætla ekki að klára allt funnið strax eiga smá til betri tíma.

Bara takk fyrir mig í bili Wizard L8er 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband