Eva Dögg Sigurðardóttir

Eva heiti ég. Ég er fædd 21.09.1982 á Akranesi. Ég er yngst. Pabbi vann á sjó fyrstu 6árin mín mamma vann í HB &co svo fór þau úti Tölvurekstur 1988. 1992 flytum við suður og ég flakka á milli flataskóla, fellaskóla, Grandaskóla og aftur í Fellaskóla. Árið 1998 kynnist ég manninum mínum Helga Þór en hann var þá að læra bakarann vann í Myllunni. 1999 hætti hann bakstrinum og vann með mér hjá Pabba í tölvubúðinni. 22.Desember.1999 trúlofum við okkur og 26.janúar.2000 fæðist dóttir okkar Dagný Maja. Sept. 2000 kaupum við okkur fyrstu íbúðina og flytjum á skagan. í Maí.2002 flytjum við suður og giftum okkur í ágúst 2002. Svo 17.mars 2003 á afmælisdag systir minnar fæðist eldri sonur okkar hann Alexander Dagur. Í janúar.2005 kaupum við Veitingahús og bar en seljum það í Des.2005 vegna þess að ég fékk ofnæmi og gat ekki unnið þar lengur. Í september2005 fór maðurinn minn út í Sendibíla Akstur og í byrjun 2006 kaupi ég mér lítinn sendibíl og ætla að aka með kallinum en stuttu síðar verð ég ólétt svo ég sel sendilinn. yngri sonur okkar fæddist 31.jan.2007 hann átti að fæðast 2.Feb.2007 en ég fékk meðgöngueitrun og blóðtappa í fylgjuna og með heppni fór ég sjálf að stað í fæðingunni. Guttinn hefði ekki mátt vera mínutu lengur inní mér því hann var blár þegar hann fæddist og hafði legvatnið farið nokkrum dögum áður.

Ábyrgðarmaður skv. Þjóðskrá: Eva Dögg Kristínardóttir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband