Jæja best að nota þessa síðu fyrst maður var að búa hana til :)

Núna er 1mánuður síðan við fengum Octaviuna okkar og hún er sko alveg að virka 1,9TDI Við fórum í bústað á henni 10-14ág.Ókum frá Rvk uppí Bgn og úr Bgn uppí Munaðanes. og fórum 2x uppí bgn og svo úr Munaðanesi og til Rvk við tókum 1 rúnt í Rvk og svo heim og þegar við stoppuðum á planinu heima var aðeins 1/4 búinn af tánkinum. Bíllinn var BTW stút fullur af farangri og farþegum. VW okkar er ennþá á sölu vonandi að hann seljist sem fyrst. Helgi keypti sér svo GLÆnýjan Sendibíl M.benz Sprinter kom á götuna 21.08.07 helv... Flottur en gamli sendillinn stendur úti á plani á eftir að sjæna og koma á sölu :P úff svo við erum að borga af 4bílum og 4tryggingar hehe sem betur fer bara tímabundið, Svo erum við að skoða leiguhúsnæði á skaganum. 4-5herb. og ætlum að leigja okkar út á meðan.. Erum alveg staðráðin í að flytja frá RVK. Dagný var reyndar að byrja í 2bekk í hólabrekkuskóla en hún er fljót að kynnast nýjum krökkum. Alex er algjör dugnaðar Grís hefur nokkrum sinnum fengið að hjálpa pabba sínum að keyra út sóma og stundum brætt konurnar í sjoppunum að þær hafa gefið honum sleikjó Grin Og sá allra minnsti lætur sko EKKERT stoppa sig algjör bolti, hann er að verða komin í 9kg enda bara 4dagar í að hann verði 7mánaða gamall, Hann elskar að leika á teppi á gólfinu enda algjör ökuníðingur í göngugrindinni ekur allt og alla niður. LoL Hann Á afmælis daginn hans Pabba sagði hann skírt og greinilega AMMMMA.  Enda elskar ömmu sína útaf lífinu, Mamma er náttla alveg eins og Helga amma. Svona AMMA sem ALLIR ELSKA.. Veit ekki hvar ég og börnin mín værum án hennar múttu .

Núna styttist óðum í að ég verði 25ára það er eilla bara 26dagar i það . Og ekkert plan ennþá ... og það eru 27dagar í að það séu liðin 9ár síðan við Helgi byrjuðum saman. Það eru 5ár síðan við gengum í það heilaga 10.08.02. Mér finnst alltaf jafngaman að rifja upp þegar við kynntumst Tounge smá svona info ... 

Við vorum búin að tala smá saman á IRK-inu þegar við komumst að því að við myndum búa rétt hjá hvort öðru, Svo við ákváðum að hittast. En ég var svo feimin að ég lét hann koma fyrir utan heima en þorði svo ekki út hehe svo ætlaði ég að vera rosa cool næst og var alveg 100% viss um að ég skildi sko þora Svo hittumst við á IRK-inu og ákváðum að hittast daginn eftir í hádeginu semsagt hann var að vinna  í Myllunni til kl. 9 um morguninn en ætlaði að vaka til kl. 12 til að hitta mig sækja mig niðrí búð til pabba og keyra mér heim ( það var ekki alvarlegra en það) en svo rétt fyrir kl. 12 þurfti pabbi að skreppa í bankan og skildi mig eina eftir í búðinni og þá sá ég Helga leggja í stæði fyrir framan og ég fékk hnút í magan og rýk í síman og hringi í vinkonu mína Eyrúnu og þetta var orðið svo spennó hehe þannga til Helgi stendur upp úr bílnum og gengur í áttina að innganginum inní búðina og ég bara SHITT................... En sem betur fer beygði hann inn í sjoppuna við hliðin á ( get svarið fyrir það að hjartað fór uppí hálsinn á mér) Svo  kom hann út úr sjoppunni og fór út í bíl og þá hugsaði ég "djöfulsins sveitalubbi er þetta í lopapeysu og í stígvélum" Blush hehe... jæja pabbi kom og sá bílinn hans Helga og var alltaf að reka á eftir mér að fara út til hans :P ég hélt sko ekki hehe... Fór heim með pabba en Helgi reyndi að elta "halda í við pabba" þegar pabbi stoppaði á planinu heima hljóp ég inn eins og fætur toguðu og ég hringdi í Eyrúnu vinkonu til að segja henni alla sólarsöguna hehe... jæja Svo hitti ég hann á IRkinu nokkrum dögum seinna og afsakaði þetta allt hehe Svo reyndi Helgi í síðasta sinn að bjóða mér á rúntinn föstudagskvöldið eftir þetta og ég ákvað að ég YRÐI að fara og vitir menn ég FÓR :) þetta var bara helvíti gaman, rúnta svona, Ég kom heim að ganga 4 um nóttina átti að mæta í vinnu hjá pabba á Laugardeginum, Laugard.kv. fórum við aftur að rúnta og tókum þá frænda hans með. Ég skemmti mér bara þokkalega. En á Sunnudeginum hittumst við ekki. Svo á Mánudeginum átti ég afmæli og hann vildi endilega bjóða mér í bíó en ég afþakkaði það. En hann vildi endilega fá að sækja mig í skólan (FB) á Þriðjudaginn sem ég samþykkti.. Svo seinna um daginn hittumst við á IRK-inu og við hittumst seinna um kvöldið og byrjuðum saman. Eftir það urðum við óslítanleg í sundur :P Hann þorði reyndar ekki að koma inn til mín fyrr en 3mánuðum seinna en ég þorði heim til hans hehe... Hann var svo sniðugur að leigja Spólu og horfa heima hjá sér svo sofnaði hann útfrá spólunni og á endanum labbaði ég bara heim, Einn morguninn heyrði ég svo í útvarpinu að það var verið að lýsa eftir klikkuðum manni í breiðholtinu. úff ekki góð tilfinning sem streymdi um mann þá. Helgi var þó nánast fluttur inn til mín eftir 6mánaða samband. En já þetta var hálfgerður sirkus í kringum allt þetta hehe, sem er bara gaman að rifja upp. Það verður gaman í ellinni að geta hlegið af þessu öllu saman.

Já fyrst ég er byrjuð að rifja upp gamla tíma Cool Þá verður maður að rifja upp sumó ferð okkar Helga, Eyrúnar og Rúnar ( frændi helga) Við vorum þarna 23-25apríl 1999. Helgi og Rúnar hentu Eyrúnu út í heitapottinn og hún gargaði bara "EKKI SKÓNNA EKKI SKÓNNA... " Það var sko skemmtilegur tími InLove Jæja vá hvað maður getur rifjað margt upp. En ég ætla ekki að klára allt funnið strax eiga smá til betri tíma.

Bara takk fyrir mig í bili Wizard L8er 


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband