Á fullu að baka

Jæja núna er 17.Sept. og það eru 4dagar í afmælið mitt Smile Ætla að bjóða familijunni í smá kaffi á Laugard. er búin að pannta 30manna marsipantertu og er að baka púðusykurtertu, í gær bakaði helgi pizzasnúða og kanelsnúða, mamma ætlar að gera snittur og svæ ætla ég að baka 2 svampbotna á morgun og svo baka ég skúffuköku á föstudaginn. Helgi ætlar að pannta ávaxtabakka og desertbakka frá Sóma "ný tegund" Ég ætla svo að bjóða nokkrum vinum heim um kvöldið samt ekkert búin að plana fyrir það.. En það kemur Wizard Við fórum uppá Skaga í afmæli hjá henni Sóleyju frænku hún varð 6ára í gær byrjuð í skóla og alles við gáfum henni Rúlluskó hún var rosa spennt. Ég var svo HEPPIN að fá einkanúmerið HEADS í afmælishjöf Cool frá Mömmu og Pabba, Tengdó, Bjarka og fjölskyldu, Eyrúnu og Fjölskyldu og Eyrúnu vinkonu og Hauk og audda Helga og börnunum mínum.. 

En Helgi er búinn að kaupa annan Crying pakka ég er búin að sjá hann. ( hann er pakkaður inn)  

Ég var að vinna í gærkveldið fyrir Svanhildi hún ætlar að vera svo ÆÐISLEG að vinna fyrir mig næstuhelgi. Svo á ég að vinna í kvöld og fimmtudagskvöld svo komin í helgar frí. 

29.júní 2007 voru akkurat 15ár síðan við fluttum í Bæinn frá Akranesi.

Nú styttist óðum í jólin ... það eru bara  14vikur í þau eða 98dagar.. Það verður nú stuð um jólin allavega miklu meiri en síðustu jól þegar ég lá með bumbuna uppí loft og gat ekki hreift mig Grin núna verður maður á eftir litla kallinum út um allt að passa upp á pakkana og jólatreíð og svona hehe.

Jæja marengsbotninn er að verða tilbúinn. Ég reyni að skrifa inn aftur soon Halo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband