Jæja verður maður ekki að skrifa smá hér Monta sig af litla kútinum, Hann er orðinn svo stór og duglegur og svo gaman að fylgjast með honum. Hann segir alveg skýrt Mammma, babbba, afa, ammm, og nammma. Svo er hann alltaf í bíló hehe Alex er loks farinn að hafa áhuga á litla bróa. Hann er já kominn með 8tennur (framtennurnar) ENNN við fórum til doksa á þriðjud sl. því hann vildi svo lítið drekka og var e-h pirraður. En hann er greyið með vírus í munninum sem fer bara fljótlega og svo var miklar bólgur og 1 jaxl farinn að gæjast upp hægra meginn það er útskýringin á pirringinum og eyrnanuddinu. En hann er orðin svo duglegur að drekka úr stútglasi alveg hættur á brjósti mér til mikillar ánægju enda bara hver bróstagjöf orðin kvöl. En hann borðar alveg 5-6x á dag og elskar að fá hrökkbrauð með smjöri
En já úr 1 í annað
Þá er Octavían okkar sem er btw 2ja og 1/2mánaða gömul að fara á verkstæði núna 26.okt. til að fá nýjan ljós-kastara, hinn er greinilega óþéttur því það er móða inná honum. En við fáum láns tík á meðan hahaha. Ekki það að við þurfum neitt sérstaklega á því að halda þar sem við erum ekki ennþá búin að selja Touraninn og eigum 2 sendibíla
Erum jú alltaf á leiðinni með hinn sendilinn á sölu og færa Touraninn eða augl. í blöðunum. Það er ekkert vit að vera að borga 160þ á mánuði í bílalán og 420þ í tryggingar á ári af bílunum 4.
Við tókum íbúðina af sölu ætlum að klára baðherbergið og setja hana svo á aðra sölu láta meta og svona hún var metin í Sept 2005 á 19,5 svo hver veit nema hún sé búin að hækka smá.
En aftur úr 1 í annað hehe núna styttist óðum í að Plasmatækin sem pabbi var að pannta komi til landsins Pabbi var að tala um lok Oktober. En pabbi og mamma ætla að gefa okkur, systu og co og brósa og co sitthvort 50" tækið Það verður aldeilis munur að horfa á TV þá.
Eldri börnin eru úti að leika og SPH er að borða brauð með sméri og Ost, Ætli það sé þá ekki kjörið tækifæri til að fara og eldamatinn og gangafrá smá hér áður en ég fer að vinna...
SVO EKKI AÐ NENNA AÐ FARA AÐ VINNA. Mig langar að vinna á BAR Það er það eina sem ég sakna af GALBI hlutanum hehe.. Sakna ekkert veitingageirans né bókhaldinu, og innkaupunum en að afgreiða á barnum var fun........................ hehe gaman að hita alla þessa útlensku kúnna sem voru skemmtilega fullir jæja ég bið að heilsa í bili og minni á Gestabókina ALLIR AÐ KVITTA FYRIR SIG hvort sem þið þekkið mig/okkur eða ekki
Jæja BÆ Í BILI
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.