43dagar til JÓLA :)

Já það eru 43dagar til jóla... En já smá info um líf okkar Wink Við vorum að skoða á netinu íbúðir og sendum fyrirspurn um íbúð á Akranesi spurðum hvort þau vildu skipta á okkar í Rvk en því var hafnað en salinn benti okkur á íbúð sem möguleiki væri á að skipta á. Við fórum að skoða og það er sett á hana 23,9millj. Okkur leist alveg ágætlega á aðalega vegna þess að það tæki krakkana 1mín að labba í og úr skólanum...  En íbúðin er í Raðhúsalengju og á 2hæðum. Svo kom maðurinn að skoða okkar á Miðv.daginn sl. kl.15:00 og kl.17:30 hringir salinn og biður um e-mailið okkar og sendir á okkur tilboð frá þeim það hljóðar uppá okkar á 21,9millj +2millj í pen  = 23.9millj. fyrir  þeirra. Tilb. stóð til kl. 14 á fimmtud. Ég og pabbi fórum uppá skaga og skoðuðum aftur og þá kom ýmislegt í ljós m.a að innréttingar eru mjög lélegar, og lélegt gólfefni. allavega 4rúður ónýtar. Svo við fórum á fast.söluna og sögðum að 23,9millj væri of mikið. Salinn bauð okkur þá að senda mann til að meta okkar eign og við þáðum það, "hún" kom svo og mat okkar á Föstud. kl.15:00 og sagði að 21,9millj -22,5millj væri alveg raunhæft boð. En við fengum Remax til aðeins fyrr þennan dag og meta og við fengum mat frá þeim uppá 22.8millj. Auðvita brá okkur að  heyra þessa tölu því við vorum lengi búin að horfa á 19,5millj. Þannig að við keyptum á 14.7millj . ág/2005 og ef við gætum selt á 22,8millj er það hækkun um 8,1millj. Sem er alveg þokkalegt En auðvita hafa lánin hækkað. En já við erum eigilega hætta alveg við að skipta á Raðhúsinu, nennum ekki að standa í endurbótum aftur. allavega ekki svona mikið. En já Plasmatækin áttu að koma á föstudaginn en Tollurinn er með e-h stæla þannig að þau fást ekki fyrr en á mánudag-þriðjudag, En Helgi sá tækið og sagði að það væri bara þokkalega kúl :) Jæja núna ætla ég að kveðja og koma liðinu í háttinn

Svo ég segi bara Bless í bili

 

H E A D S


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband