Það er komið alltof langt síðan ég skrifað hér siðast... Ég veit ekki hvar ég á að byrja ...
Það var jú keyrt á skodan hér úti á stæði og stungið af í janúar. Yngsti meðlimurinn er farinn að hlaupa út um allt og hann er algjör frekja .... Hann er samt algjör DÚLLA.
Pabbi og Mamma unnu eitt af mörgum málum við Íslandsbanka og þau vildu endilega deila því með okkur systkinunum. Þau komu með 3 umslög í afmælið hennar Dagnýjar og Sveinbjörns og í hvoru umslagi var 200.000kr sem við áttum að nota fyrir okkur í bara hvað sem er NEMA SKULDIR =) hehe
Við létum því til skara skríða og tókum baðherbergið í gegn enda löngu kominn tími fyrst ætluðum við bara að skipta um dolluna en við fundum upphengt klósett á tilboði sem við stóðumst ekki því það kostaði BARA 29.900kr :) en svo þurfti kítti, frauðeinangrun, klæðningu, svo var ákveðið að mála og fyrst við vorum komin svona langt var synd að hætta svo við keyptum flísalim og fúgu og settum flísarnar á gólfið sem hefur staðið lengi til. Svo bættist við innrétting og nýr vaskur og nýtt ljós :) svo að á endanum þá var baðherb. komið uppí 120.000kr En við keyptum okkur nýja Ameríska dýnu á rúmið okkar og Grill fyrir 200.000kr svo að ég sé ekki eftir neinni krónu :) MJÖG sátt og þakklát gömlu hjónunum sem eru reyndar ekkert svo gömul ;) Um páskana þá hittumst við fjölskyldan heima hjá mömmu og pabba í kaffi og fórum svo í keiluhöllina sumir spiluðu keilu en aðrir fóru í þythokkí eða pool mjög gaman og var endað heima hjá mömmu og pabba í BBQ mmmmmmmmm og ís í eftirrétt. Svo núna um helgina sem er að líða að þá ætlum við vinkonurnar að hittast LOKSINS og gera e-h saman planið er BBQ heima hjá Eyrúni og svo kíkja í keilu eða á skauta.. Alex og Dagný fara trúlega uppá skaga til Eyrúnar systir og family þar sem þau eru búin að SUÐA OG SUÐA alltaf svo gaman hjá Eyrúni frænku og Co... Svo Er ég svo heppin að Brósi og Frú ætlað að redda okkur bústað 25-27apríl en Helgi á afm. á sumardaginn firsta (24apríl.) Það verður SVO NICE. Ég er búin að gefa honum afm.gjöfina fyrirfram =) keypti Ps3 + 2xpsp + 2xps3 leiki + 5xpsp leiki en psptölvurnar eru ætlaðar krökkunum :) Jæja þetta er orðið ágætt í bili reyni að skrifa soon :) og þarf að fara að setja inn myndir af guttanum en finnst bara taka svo langan tíma að downloda þeim hingað inn...
Kv. H.e.a.d.s.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.